This picture asks me too many questions like why is the woman the focus of this image and what is she looking at. It almost doesn't go with the ominous clouds and raging sea.
Noh, það er bara aldeilis; bara önnur mynd frá sama stað og ég tók mína. :)
Kannski eitt, ég held að þessi mynd væri mun betri í svarthvítu en í lit. Ennfremur mætti keyra smá Image->Adjustment->Shadow/Highlight á hana í Photoshop til að fá fram teikningu í dökku svæðin í grjótinu vinstra megin.
Annars finnst mér einhvern veginn að myndin hefði verið skemmtilegri ef stelpan væri að horfa á eyjuna/skerið þarna útá í stað þess að vera að taka mynd. Bara leiðinlegt hvernig andlitið á henni er hulið af myndavélinni.
Myndin er kannski fulldökk líka fyrir minn smekk ...