Hvernig líst ykkur á sunnudaginn núna um helgina til að hittast, t.d. hjá Rauðhólum eða einhversstaðar í nágrenni Rvk? Þetta getur verið bara stutt, t.d. 3 mín... :-P
Ég kemst ekki.
Það er allt geðveikt að gera hjá mér í skólanum. Þyrfti að geta lengt sólarhringinn um svona 6-7 klukkutíma !
Ef einhver kann það, þá má sá hinn sami alveg hafa samband ! :-)
Svo datt mér í hug hvort það gæti ekki verið flott að fara í garðinn (Hellisgerði) í Hafnarfirði, hann er flottur og það eru flottir haustlitir núna. Hvað segið þið um það, hvar viljið þið hittast og mynda og hvernig líst ykkur t.d. á kl. 14?
ætla ekki að skemma neitt en veðurspáin er nú ekkert sérstök :-)
Það var fínt veður í dag, þessi gula þarf ekki alltaf að vera starandi á okkur... flott að fá smá blauta jörð og nokkuð bjart inn á milli, það kemur skemmtilegur kontrastur við þannig skilyrði. Það spáir súper myndatökuveðri á morgun! Það gæti rignt af og til, aldrei að vita nema "við" ( ég :-( ) fáum flotta birtu inni á milli.
Kemst því miður ekki, sonur minn á eins árs afmæli og ég með fullt hús að gestum frá klukkan 14:00. Endilega hendið inn linkum á myndir eftir tökuna. Vona að þið fáið ekki svokallað skítaveður.
Ég sá þennan þráð ekki nógu snemma, en það kannski skiptir ekki máli því að ég kemst hvort sem er ekki.
Ég var á Þingvöllum í gær, virkilega flottir haustlitir þar.
Ég er að hugsa um að kíkja þangað í vikunni, ca. mið ef veðurspáin gengur eftir og það verður lygnt (flott speglun í vatninu og í gjánum)